Öryggi í snjallsímum

Snjallsímastuldur fer vaxandi í heiminum, það er staðreynd og oftar en ekki er um að ræða rándýr tæki, sem gera símana meira "aðlaðandi" fyrir þjófa að komast yfir.

 

En það er ekki einvörðungu fjárhagslegt tjón við að missa símann sinn heldur, eins og í þessari frétt, getur þjófurinn hækkað símreikninginn mikið með símtölum sem þessum auk þess að snjallsímar í dag geta skapað gríðarlega gagnanotkun, sem getur einnig kostað sitt og endað sem hár símreikningur réttmæts eiganda símans.

 

Hvernig er hægt að takmarka tjónið og tryggja gögnin sín?

 

Ef þú notar Windows Phone síma, t.d. Lumia síma frá Nokia, þá er þetta í sjálfu sér mjög einfalt því það fyrsta sem eigandi að slíkum síma þarf að gera þegar hann kaupir símann er að setja upp Microsoft reikning (account) fyrir símann. Þetta er nauðsynlegt að gera til að virkja símann að fullu.

 

Ég ætla ekki að fara út í smáatriði eða kennslu á símann sjálfan hérna heldur að benda á hvað það þýðir að hafa Microsoft account í símanum þegar kemur að því að maður týnir símanum eða honum er stolið.

 

Ef símanum er stolið eða hann týnist, þá getur notandinn farið í næstu tölvu, slegið inn slóðina www.windowsphone.com og síðan slegið inn sitt aðgangs- og lykilorð (Microsoft account), hið sama og er í símanum.

 

Svo þarf bara að velja "Find my phone" og þá kemur upp mynd á skjánum sem sýnir á korti hvar síminn er staðsettur. Auk þess eru þrír aðrir valkostir í stöðunni:

 

1. Ring - Þá hringir síminn hávært, jafnvel þó hann sé stilltur á Hljóðlausa stillingu (silent)

2. Lock - Þá læsir síminn sér og ekki hægt að nota hann nema með lykilorði sem þú ákveður

3. Erase - Þá eyðir þú sjálfkrafa öllum gögnum útaf símanum

Find my phone

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lykilatriði hérna er að hér er ekki um app eða forrit að ræða sem þú þarft að hala niður eða kaupa, þetta fylgir frítt (default) með Windows Phone símum og virkjast um leið og þú virkjar Microsoft account í símanum. 

 

Ég hvet alla til að kynna sér þetta ítarlega. 


mbl.is Stal síma og hringdi til Sýrlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vissulega getur verið nauðsynlegt að hafa símann með sér. En í flestum tilfellum er svo ekki. Þetta er orðin hrein della hjá fólki að hafa gemsan eða snjallsímann alltaf með sér. Kannski ekki status symbol, ekki lengur, frekar ímynduð nauðsyn.   

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 12.4.2013 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband