25.10.2008 | 19:15
Jón Baldvin
Ég var eitthvað að mæra hann hérna á blogginu um daginn. Ástæðan, jú að mér hefur alltaf fundist hann mjög magnaður stjórnmálamaður sem hefur náð vel til mín.
En fyrir mér jarðaði hann þessa skoðun mína í dag með því að taka þátt í mótmælum þar sem múgurinn öskraði bara DAVÍÐ BURT, DAVÍÐ BURT!!! Algjörlega burtséð frá Davíð og mismunandi skoðunum manna og kvenna á honum, þá held ég að Jón Baldvin ætti að vita að það er nú varla við Davíð einan að sakast. Hélt í alvöru að Jón væri málefnalegri en þetta.
Þögn ráðamanna mótmælt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Steini
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.6.2014 Benz notar HERE Maps frá Nokia
- 12.4.2013 Öryggi í snjallsímum
- 11.7.2012 Rugl er þetta
- 10.2.2012 Google translate ????
- 5.2.2012 Cryptophone
Tenglar
Línuskautartúrar
- Nokia Sports Tracker - Steini Þetta er algjör snilld, einfalt og kostar ekkert.
Guesthouse
- Bjarg guesthouse Gueasthouse downtown Reykjavik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vissulega er ekki við Davíð einn að sakast, heldur m.a. Jón Baldvin sjálfan, sem kom okkur í það EES, sem gerði bæði þessa ævintýramennsku bankamanna mögulega og setur á þjóð okkar þungan skuldaklafa, m.a. (sem þó er minnst) vegna Icesave-reikninganna. En um hlut Davíðs hef ég oft fjallað, þótt ég ræði málið á miklu breiðari grundvelli, t.d. í þessari nýju grein minni, þar sem líka er vísað á gagnrýni mína á Davíð, m.a. ofurlaun hans.
Jón Valur Jensson, 25.10.2008 kl. 19:22
Ég er alveg sammála þessu í ég hef lengi haldið fram þeirri skoðun minni að tveir stjórnmálamenn síðari tíma hafi staðið öðrum framar þ.e Davíð Oddsson og Jón Baldvin en því miður hef ég algerlega misst allt álit á Jóni. Árangurinn af þessari vegferð hans verður ekki meiri en þegar Bryndís grét fyrir framan jarðýturnar í Álafosskvosinni.
hordur (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 21:16
Hann tapaði kannski annars góðu innsæi sínu maðurinn rétt þarna og lét stjórnast af múgæsingunni eins og fleiri.
Annars er Jón minn maður
Kv. Rambling Rose...
Linda Lea Bogadóttir, 26.10.2008 kl. 12:37
Þetta er nú alveg dæmigert fyrir ringulreiðina nú um stundir. Þú skammast hér út í karlinn fyrir að taka þátt í einhverjum "Davíð burt" múgæsing, en víða um bloggheim eru aðrir að skamma hann aumingjan fyrir alveg öfugt, að hafa "rofið samstköðu" og verið með eitthvert einkaflipp í þágu dóttur sinnar!
Frekar ruglingslegt og ekki bætir svo kenning Jóns Vals úr skák hérna, með sömu röksendarfærslu væri hægt að fara mun aftar í tíma og þykjast þar með finna enn fleiri sökudólga!
Magnús Geir Guðmundsson, 28.10.2008 kl. 01:06
Heyr heyr, ég var rosa ánægð með hann eftir silfrið um daginn en þegar hann tók uppá þessu var það álit fljótt að fara.
Arna frænka (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 08:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.