Aldrei fleiri já......

Þeir sáu nú fleiri bara fyrir örstuttu síðan.....
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/12/19/fjorur_thaktar_rotnandi_sild/

mbl.is Sáust 16 hafernir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokia World 2011

"Smá" villa í texta MBL í þessari frétt sem segir neytendur geti séð þetta á Nokia World 2021 - En það var semsagt í síðustu viku sem þeir sýndu þessa framtíðartækni og var ég á staðnum. Mjög áhugavert svo ekki sé meira sagt.
Hér má sjá myndband þar sem þetta er kynnt. http://www.youtube.com/watch?v=E_j8W1rpHOM

mbl.is Sveigjanlegi snjallsíminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rollukvikindi

Er ekki kominn tími til að hætt verði að gera ökumenn ábyrga fyrir nautheimskum kindum sem hlaupa óvænt í veg fyrir umferð? Er rollan þess virði?
mbl.is Rækjan tók húsið af bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju apótekum???

Ég er reykingamaður,...því miður. En ég hef nokkuð oft og nokkuð víða tjáð mig um skoðun mína á þessum málum og læt því flakka enn og aftur.

Mér finnst alveg út í hött að færa almenna sölu á tóbaki til Apóteka, get með engu mótiu skilið þá leið. Sú leið sem ég tel að muni klárlega leiða til minnkunnar reykinga í framtíðinni er að færa alla sölu tóbaks í verslanir ÁTVR, Vínbúðirnar. Og að þar verði eingöngu hægt að kaupa karton, ekki einn og einn pakka.
Ég er sannfærður um að þetta hefta aðgengi muni minnka líkur til muna á að ungt fólk hefji reykingar. Það mun líka minnka "sprengingar" hjá þeim sem eru að hætta því þeir geta ekki skotist út í sjoppu að kvöldlagi og hafa því nokkra klukkutíma til að hugsa sig um,.....komi þörfin upp að kvöldi til eins og svo oft vill verða.

Það EINA sem virkar af einhverri alvöru í stríðinu gegn reykingum er að hugsa til framtíðar, ekki koma með skyndilausnir, þær virka ekki á okkur sem reykjum.


mbl.is Tóbak verði bara selt í apótekum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að mæla leiðina með símanum sínum

Ég má til með að minnast á GPS tæknina í farsímum í tengslum við þessa frétt og Hjólað í vinnuna átakið.

Það vita það margir en alls ekki allir að með flestum snjallsímum hafa notendur möguleika á að setja upp með mjög einföldum hætti ókeypis forrit í símana sína. Forrit sem mæla vegalengd, hraða og hæð yfir sjávarmáli auk þess að sýna svo á korti hvaða leið var farin.Bendi ykkur á að skoða meðfylgjandi link til að skoða hvernig þetta lítur út:

http://www.sports-tracker.com/#/workout/steini/a7h76mb9643su2uj 

Svona lagað geta semsagt velflestir sem á annað borð eru með snjallsíma einnig gert til að halda utanum hjólatúrana sína, göngutúra, línuskauta, skokk eða hvaða aðra utanhúss hreyfingu sem er.

Fyrir notendur Nokia snjallsíma bendi ég á SportsTracker sem er að finna í Ovi Store - Þar er einnig að finna sambærilegt forrit sem heitir Endomondo en SportsTracker er þó betra að mörgu leyti.

Fyrir notendur HTC og annara síma sem keyra á Android stýrikerfi bendi ég á Endomondo eða RunKeeper sem er að finna í Market í símanum.

Mæli eindregið með því að notendur snjallsíma prófi þetta og noti. Þetta eru einföld forrit og gera það einfaldlega skemmtilegra að stunda hreyfingu og einfalda utanumhald þess sem maður gerir. 


mbl.is Kortleggja hjólreiðar á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættulegir

Í mínum huga eru margir strætóbílstjórar hreinlega hættulegir. Þeir fara öðrum fremur yfir á rauðu ljósi, þeir keyra stundum rosalega hratt og eru mikið í því að "passa uppá" stöðu sína með því að gefa lítið eftir þegar litlir bílar þurfa að komast framfyrir þá og svo á hinn bóginn þá dóla þeir stundum alveg svakalega, líklega til að halda einhverri tímaáætlun. En dól skapar framúraksturhættu.

Það þarf að gera átak þarna


mbl.is Strætisvagnabílstjórar á hraðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B

Auðvitað er hann ekki búinn að svara. Það segir sig sjálft að þar sem yfirtrúðurinn er í flugi, að þá nær Dagur ekki heldur í hann til að spyrja hvort hann megi svara og hverju hann eigi þá að svara.
mbl.is „Við þökkum þeim fyrir þeirra framlag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil skrif um einhverja stærstu frétt tengda farsímabransanum um áraraðir

Já, mér finnst nú mbl gera þessari stórfrétt lítil skil í þessari frétt sinni svo ég sé ástæðu til að bæta í.
Bendi á Tækniblogg Hátækni http://www.hataekni.is/is/hataekni_i_25_ar/taeknibloggid/

Hátækni er umboðsaðili Nokia á Íslandi.


mbl.is Tekist á við iPhone og Android
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjahhh,.......

Fyrst þegar ég las þessa frétt hélt að þetta væri hitt framlag Steingríms í gær til ferðamála á Íslandi, sem hann vill ólmur hefta sem mest hann má, með auka skattlagningu á þessar hræður sem þó kom hingað til að skoða landið.

Hélt þetta væri svona hans aðferð til að sýna landið,...því hvort eð er myndi helmingur þeirra sem vilja koma, hætta við vegna þeirra álaga sem hann vill leggja á ferðaiðnaðinn. Mér skilst að um það bil 400.000+ erlendir ferðamenn sæki Ísland heim árlega.

En svo þegar ég las áfram þá sá ég að þarna var auðvitað á ferðinni fólk sem þvert á fjármálaráðherra, vill efla ferðamannaiðnaðinn. Frábær hugmynd, ekki síst í ljósi góðs árangurs Inspired by Iceland.

Tækifærin eru til að grípa þau og tækifærin í ferðamannaiðnaði á Íslandi eru gríðarleg.


mbl.is Vilja vefmyndavélar á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur þó !!

Hvað er það eiginlega sem þessi maður skilur ekki þegar kemur að því að skattleggja vöru og þjónustu???

Ég starfa við innflutning á mjög vinsælli vöru sem þar að auki er í sölu á mörgum stöðum, hjá mörgum mismunandi fyrirtækjum. Mín samkeppni er bæði innlend og erlend og verð ég að standast samanburð við það besta sem þekkist í allri Evrópu.
Ef ég þarf af einhverjum ástæðum að auka tekjurnar við sölu á þessum vörum þá get ég alveg gleymt því að ætla að fara þá leið að leggja meira á vöruna. Slíkt myndi bara þýða eitt, mínir viðskiptavinir færu bara eitthvað annað af þeirri einföldu ástæðu að samkeppnin er til staðar og hún er hörð og af nógu að taka.

Alveg nákvæmlega þetta sama á við um ferðaþjónustana. Því þó svo að það sé bara til eitt Ísland, þá eru vinsælir ferðamannastaðir, lönd og borgir í hundraða og þúsundatali allt í kringum hnöttinn. Ísland er síst ódýrasti kosturinn og auknar og flóknar álögur munu ekki hjálpa til við að hvetja ferðamenn til að heimsækja landið. Kannski vill Steingrímur bara að við fáum að vera í friði?

Ferðamannabransinn er drjúg tekjulind fyrir þjóðarbúið en við getum án nokkurs vafa aukið hann margfalt ef rétt er á spilunum haldið. Að gera það dýrara fyrir ferðamenn að koma hingað er ekki rétt skref uppá við að auka heimsóknir heldur þvert á móti, skref niðurá við.

Hvað það varðar að sækja tekjur til uppbyggingar vinsælla ferðamannastaða á Íslandi, þá er það vel. En það á að gera með því að selja aðgang að slíkum svæðum, byggja þau upp og gera þau enn meira aðlaðandi en ekki með því að fækka fólki sem kemur til landins. Má ég benda á Bláa Lónið í þessu samhengi sem er einn af glæsilegustu stöðum á landinu fyrir ferðamenn að skoða.

Hverju skiluðu auknar álögur á áfengi svo eitthvað sé nefnt? Jú, samdráttur í sölu á áfengi, aukið smygl, stóraukning á heimabruggi og nú er staðan sú að í skoðun er að loka 1-2 Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar tapast störf.
Nema hann líti á þetta sem forvarnarstarf til að minnka áfengisneyslu. Well, gleymdu því Steingrímur að þetta sé leiðin að því.

Steingrímur, vaknaðu !!!


mbl.is Mjólkurkúnni verði ekki slátrað með auknum gjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu komið á markað - Micro USB

Þessi gerð hleðslutækja er reyndar löngu komin á markað og flestir farsímaframleiðendur byrjaðir að nota þetta.
Hleðsluinntakið sem um ræðir er MicroUSB og er eins og áður segir nú þegar að finna í miklum fjölda farsíma.
Apple er líklega eini framleiðandinn sem ekki hefur enn brugðist við þessari Evróputilskipun sem tekur gildi 1. janúar 2011 en aðrir framleiðendur eins og Nokia, HTC, Motorola, Samsung, LG, SonyEricsson, Sonim og fleiri minni byrjuðu að framleiða sína síma með þessari gerð hleðsluinntaks á þessu og síðasta ári.

mbl.is Samræmd hleðslutæki fyrir síma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjár á bakhlið !!!!????

Hvaða bull er nú þetta,.................það er einn skjár á símanum og hann er á framhlið hans :)
mbl.is Skjár iPhone 4 viðkvæmur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SMS undir stýri er ekkert grín

En það er ekki bara SMS því nú eru mjög margir með tölvupóstinn sinn einnig í símanum og það sama á auðvitað við um hann.

Staðreyndin er sú að mjög margir skrifa tölvupóst og SMS á sama tíma og þeir aka bíl. Ég gerði það hérna í eina tíð en meðfylgjandi myndband, sem ég hef reyndar oft áður dreift bæði hér og á Facebook, fékk mig til að hugsa minn gang og hreinlega hætta því.

 


mbl.is Farsímanotkun undir stýri stórhættuleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar þann stærsta í fréttina

Mér finnst nú skrítið að skrifa frétt um markaðshlutdeild snjallsíma án þess að minnast á alla sem eru á þeim markaði, og alveg sérstaklega á það nú við ef þeim allra stærsta er gleymt í fréttinni :)

Nokia eru nefnilega langstærstir á snjallsímamarkaði og munar þar miklu. 

Svona lítur þetta út á fyrsta ársfjórðungu þessa árs skv Gartner

Worldwide Smartphone Sales to End Users by Operating System in 1Q10 (Thousands of Units)

 

Company

1Q10

 Units

1Q10 Market Share (%)

1Q09

 Units

1Q09 Market Share (%)

Symbian

24,069.8

44.3

17,825.3

48.8

Research In Motion

10,552.6

19.4

7,533.6

20.6

iPhone OS

8,359.7

15.4

3,848.1

10.5

Android

5,214.7

9.6

575.3

1.6

Microsoft Windows Mobile

3,706.0

6.8

3,738.7

10.2

Linux

1,993.9

3.7

2,540.5

7.0

Other OSs

404.8

0.7

445.9

1.2

Total

54,301.4

100.0

36,507.4

100.0

Source: Gartner (May 2010)

Hins vegar er það rétt að Android hefur tekið svakalegt stökk síðan þessi könnun var gerð og það á kostnað allra hinna og því lítur þessi mynd svona út eftir annan ársfjórðung:

File:Smartphone share 2009 full.png

 


mbl.is Android sækir enn í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 105388

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband