Toys´R´Us Leikfangabúð - Harður heimur

Ég fer stundum með tæplega 3 ára son minn í þessa búð, honum til skemmtunar og jú, stundum til að kaupa eitthvað. Ég á þó örugglega eftir að fækka þessum ferðum eftir lestur þessarar fréttar af Vísi.

Lögregla var kvödd að versluninni Toys‘R‘Us í Kópa­vogi í gær eftir að þriggja ára drengur reif gat á umbúðir utan um leikfangabíl. Móðirin hafði neitað að greiða fullt verð fyrir ólaskaðan bílinn. Vaida Karinauskaite leit af syni sínum, Kristófer, örskotsstund inni í versluninni og í millitíðinni reyndi hann að ná bílnum úr umbúðunum með fyrrgreindum afleiðingum.

Starfsmenn kröfðust þess að Vaida greiddi fullt verð bílsins, fimmtán þúsund krónur, vegna umbúða­skemmdanna þótt bíllinn sjálfur hefði aldrei verið snertur.

„Ég var ekki með nógu mikinn pening með mér og sagði þeim það," segir Vaida, sem furðar sig á hörðum viðbrögðum starfsfólksins og ætlar aldrei aftur að skipta við verslunina. „Það var svo niður­lægjandi að fá lögregluna strax á staðinn," segir hún.

Lögregluþjónn, sem mætti á vettvang, lét sér fátt um finnast og lyktaði málum þannig að fjöl­skyldan fór án þess að borga.

Verslunarstjóri Toys‘R‘Us vildi ekki tjá sig um málið. Upplýsinga­fulltrúi fyrirtækisins einn gæti talað fyrir þeirra hönd en hann væri í Finnlandi og farinn úr vinnu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Ósk Sölvadóttir

þetta er rugl. við hverju bíst starfsfólið við þetta er búð sem mikið að bornum eru og það vita flest  allir að krakkar missasig í gleðini og fara að skoða og vilja kanski prufa og allt það og þá getur svona skeð, en það er frekar sorglegt að heira hvernig starfsfólkið brást við þessu. en svo verða líka foreldranir að filgjast með sínum börnum hef tekið eftir því að þegar fólk fer með börni í búðina þá eru þau kanski að hlaupa og eru alveg á milljón og svo eru foreldrarnir ekkert að gera í málonum

Margrét Ósk Sölvadóttir, 13.11.2008 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband