Bremsan virkjuð

Stundum finnst mér gott að horfa á hlutina öðrum augum, nota myndlíkingu. 

Menn og konur sem fylgjast með þróun nýrra bíla eða farartækja yfirhöfuð hafa í gegnum tíðina tekið eftir einni mikilvægri breytingu eða þróun á þeim sem skiptir sköpum, sér í lagi þegar um aukinn kraft og hraða er að ræða. Það eru bremsurnar. Í dag er ekki einvörðungu talað um hversu hratt t.d. Porsche 911 carrera Turbo er að ná 100 km hraða á klst heldur er einnig tekið fram hversu fljótur hann er að bremsa sig frá 100 og niður í núll. Það er mjög svo háþróaður bremsubúnaður í Porsche og eftir því sem gerðin er kraftmeiri, þeim mun betri bremsubúnað er að finna í bílnum.

Þetta veigamikla atriði er það sem stjórnvöld klikkuðu algjörlega á að þróa,...eða amk að virkja, í kjölfar stækkandi banka, kraftmeiri banka. Bremsurnar voru óvirkar með öllu, jafnvel þó þær væru að einhverju marki til staðar. Af þessari ástæðu eru það stjórnvöld sem bera mjög mikla ábyrgð á stöðu mála, Ríkisstjórnin nú og Ríkisstjórnin á undan. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin. Engin þeirra ber meiri eða minni ábyrgð en hinir því allir voru þessir flokkar í aðstöðu til að stíga á bremsuna, höfðu vald til þess, voru kosin til þess.

Í heimi bílamannsins þá ber auðvitað bílstjórinn alla ábyrgð á því að bremsa á réttum tíma og keyra ekki bílinn umfram það sem bremsurnar ráða við. Í þessari samlíkingu er ég að horfa á eigendur og stjórnendur bankanna sem bílstjóra en á Ríkisstjórnina sem hönnuð bílsins. Bílstjórinn á semsagt að hægja á sér ef hraðinn er orðinn of mikill í viðkomandi aðstæðum. Hönnuðurinn hins vegar má ekki setja bílinn á markað nema bremsurnar virki.

Ég held þess vegna að ég sé fyrir mitt leyti að komast að niðurstöðu um skoðun mína á því hver ber í raun og veru ábyrgð á stöðu mála. Það er Ríkisstjórnin. Ríkisstjórnin átti aldrei að setja þennan bíl svona bremsulausan á markað. En úr því að Ríkisstjórnin gerði það, þá áttu þeir að innkalla bílinn í febrúar á þessu ári og virkja bremsurnar þegar ljóst var að ef það ekki yrði gert, myndi það enda með stórslysi.


mbl.is Nauðsynlegt að vera samstiga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband