31.12.2008 | 15:09
Ingibjörg Sólrún,....halló, vakna!!!
Ég tók út allt sem hér stóð eftir að fréttir bárust um ofbeldi gagnvart starfsfólki Stöðvar 2.
Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Steini
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.6.2014 Benz notar HERE Maps frá Nokia
- 12.4.2013 Öryggi í snjallsímum
- 11.7.2012 Rugl er þetta
- 10.2.2012 Google translate ????
- 5.2.2012 Cryptophone
Tenglar
Línuskautartúrar
- Nokia Sports Tracker - Steini Þetta er algjör snilld, einfalt og kostar ekkert.
Guesthouse
- Bjarg guesthouse Gueasthouse downtown Reykjavik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þetta er einmitt EKKI þverskurður þjóðarinnar. Helvíti hroki í þér að halda fram að þín sjúku sjónarmið séu "þverskurður þjóðarinnar". NEI.
hs (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:10
Ertu ekki að grínast??
Styður þú þetta pakk? Ekki er ég ánægður með ástandið en þessi skríll er búin að missa mína samúð.
Krakka fávitar.
Óskar (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:11
Eru tvö hundruð manns fulltrúar þjóðarinnar? Þetta fólk eru ekki fulltrúar mínir.
GE (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:13
Algjrlega sammála þér. Ingibjörg Sólrún framdi pólitískt sjálfsmorð á borgarafundinum í Háskólabíói þegar hún sagði gesti þar ekki vera þjóðina. Mótmælendur eru ekki heldur fulltrúar þjóðarinnar segir hún núna. Hún þekkir ekki sína þjóð. Það voru ekki við, almenningur, sem stóðu að Icesave, bankabullinu, svikum og prettum. Samt eigum við sem þjóð að borga skuldirnar. Segi eins og þú: Vakna Ingibjörg Sólrún!!!!!!!!!!!!!!
Anna (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:13
mótmælendur eru ekkert að biðja um samúð þína Óskar bjani
Og þarna var fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum
Heiða B. Heiðars, 31.12.2008 kl. 15:14
Nei, ég styð ekki eyðilegginguna sem slíka,......en það hlaut að koma að þessu meðan ekkert er gert, meðan ENGINN stjórnmálamaður (fyrir utan reyndar tvo úr stjórnarandstöðu) axlar þá ábyrgð sem á þeim hvíla.
En ég styð ekki orð Ingibjargar að mótmælendur séu ekki fulltrúar okkar hinna sem ekki mæta á staðinn til að lýsa yfir okkar vantrausti.
Steini Thorst, 31.12.2008 kl. 15:14
Ef maður væri ekki svona latur tæki ég fullan þátt í mótmælum. Mér er þó ekkert um að skemma t.d. tæki stöðvar 2 í þeim tilgangi. En allavega hafa HÁTT!
Þessum mótmælum lýkur þegar stjórnin segir af sér, fyrr ekki.
Haukur Nikulásson, 31.12.2008 kl. 15:15
Þessir óeirðaseggir og múgur sem stöð að þessum ólátum fyrir utan Hótel Borg fær aldrei minn stuðning en friðsamlegir mótmælendur með andlit fá mitt atkvæði.
Bjarnþór (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:16
HALLÓ !!! ert þú eitthvað sjúkur í hausnum og þú líka Anna.
Þessi skríll er EKKI þverskurður þjóðarinnar.
Bara svo að við höfum það á hreinu þá eru þetta krakkagrislíngar sem EKKERT vita c.a. svona lýður sem mótmælti kárahnjúkum á sínum tíima og sögðust "kanski" fara þangað einhvern tímann.
Henda þessu ræflum í svartholið og gefa þeim einungis vatn og gamalt brauð og láta þau dúsa þar í einhverja mánuði
Jón Ingi (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:17
Þjónaði það skoðunum þínum að tækjabúað ruv og stöðvar 2 væri lagður í rúst og þar með fyrirbyggt að ISG væri í fjölmiðlum. Þetta er sorglegt.
Egill Jón Krstjánsson (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:18
Æi kommon..... Tækjabúnaðurinn var í formi rafmagnskapla. Óþarfi að fá taugaáfall yfir því
Heiða B. Heiðars, 31.12.2008 kl. 15:19
Gaman að sjá þetta að þeir sem eru eitthvað harkalega á móti þér sru þurkaðir út hér
ritskoðun hmmm.
Jón Ingi (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:19
Eins og ég sagði Egill, styð ekki eyðilegginguna, skemmdarverk á eigum Stöðvar 2, alls ekki.
Steini Thorst, 31.12.2008 kl. 15:19
Ha,...???? Hef ég þurrkað einhvern út?
Steini Thorst, 31.12.2008 kl. 15:20
Heiða, þessi tækjabúnaður var ekki "bara" rafmagnskaplar heldur líka tæki, svo sem upptökuvélar o.fl. Og þessir rafmagnskaplar voru það ekki heldur rándýrir video og gagnakaplar.
Stöð 2 segir tjónið hlaupa á milljónum og miðað við mína reynslu af svona tækjum þá dreg ég það ekki í efa.
Stefán (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:25
Þessi fífl eru sko ekki í mínu forsvari og munu aldrei vera það!!!! Þetta er sko enganveginn þverskurður þjóðarinnar!!
Rakel (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:28
Ástæða til að bæta við!!!!!!!!!
Nú hafa fleiri fréttir borist um þennan atburð sem draga klárlega úr stuðning mínum við ákveðinn hluta fólks sem þarna var. Komið hefur fram núna á starfsmenn Stöðvar 2, tæknimenn og fleiri séu lemstraðir eftir árásir einhverra einstaklinga.
Ég fordæmi það að sjálfsögðu og ítreka að ég styð alls ekki slíkt. Það var ekki það sem ég var að tala með í upphafsfærslu minni.
Steini Thorst, 31.12.2008 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.