Réttlætanlegt? Nei en.........

Þetta er auðvitað svo gjörsamlega út í hött, að gera þetta. Að láta sér detta það í hug er hins vegar kannski ekkert óeðlilegt þegar það er skoðað. En að gera þetta er á engan hátt réttlætanlegt þar sem hættan sem af þessu skapast er alveg gríðarlega mikil.

En þá kemur að hinu, að láta sér detta þetta í hug. Menn eru ekki að kaupa sér racer hjól til að sigla þeim alltaf á löglegum hraða, það sama á við um öfluga sportbíla og aðra kraftmikla ogt hraðskreiða bíla. Eigendur þessara tækja munu án undantekninga prófa að fara vel yfir hámarkshraða. Ég er hins vegar ekkert að reyna að réttlæta það, bara að henda fram staðreynd. Hvers vegna að eyða milljónum króna í 300-500 hestafla bíl ef ekki á að amk prófa tækið?

Það sem vantar eru brautir fyrir áhugamenn um mótórhjól og hraðskreiða bíla. Það vantar sárlega. Kvartmílubrautin gerir mjög lítið til að uppfylla spyrnuþörfina og gerir ekkert til að uppfylla hraðaþörfina, hún er of stutt til þess. Af hverju í ósköpunum taka ekki öll tryggingafélögin sig saman ásamt ríki, bílaumboðum og einhverjum fleirum hagsmunaaðilum sig saman um að gera kappakstursbrautir, svæði þar sem hægt er að þenja þessi tæki á sama tíma og hættan á slysum og dauðsföllum er miklu miklu miklu minni? Af hverju er þetta ekki löngu komið?

Bílslys vegna ofsaaksturs og afleiðingar þeirra kosta þjóðfélagið gríðarlegar fjárhæðir svo ekki sé talað um hvað það kostar marga sem í þeim lenda og aðstandendur þeirra. Ég er ekki verkfræðingur og veit ekki hversu mikið svona braut eða brautir myndu kosta,.....en ég er ansi hreint viss um að slíkt myndi samt borga sig upp á styttri tíma en t.d. Hvalfjarðargöngin. Og þá er ég að tala um gjaldfrjálsa notkun.

Þetta hlítur að vera hagsmunamál fyrir tryggingafélögin. Þetta er að sjálfsögðu mikið hagsmunamál fyrir ríkið og þjóðfélagið. En bílaumboðin eiga fullt erindi í að koma að þessu líka og sjálfsagt enn fleiri,....t.d. olíufélögin.

Ég er alls ekki að segja að hraðakstur hverfi með öllu af götum landins með þessu móti en það er alveg á kristaltæru að það mun minnka til muna. Hópar sem koma saman á hinum og þessum stöðum um borgina til að spyrna eða hreinlega keppa í hraðakstri hafa engan annan stað til þess og lögin ein koma ekki í veg fyrir að áhugamaður um hraðakstur stundi hann. En þessi áhugamaður vill örugglega sjálfur miklu frekar gera þetta á stað þar sem ekki er hætta á 50-100.000 króna sekt, missis ökuleyfis eða hætta á að slasa fólk sem átti sér einskis ills von og bjóst alls ekki við að kappakstur væri í gangi.

Ég veit að þessi umræða er ekki ný af nálinni,....en common, er þetta ekki löngu orðið tímabært? 


mbl.is Á 245 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferlega montinn :)

Fyrir einni og hálfri viku lét ég mig í fyrsta skiptið á ævinni hafa það að stökkva út í ískaldann sjóinn við Ísland til skemmtunar, hékk ofaní 8° heitum (köldum) sjónum í 5 mínútur. Daginn eftir gerði ég þetta aftur og var þá í 10 mínútur. Viku seinna synti ég svo einhverja 100-200 metra, þá að vísu í ca 12° heitum sjó, og setti mér um leið það markmið að fyrir ágústlok skyldi ég ná því að synda frá Nauthólsvík, yfir í Kópavog og til baka.

Ég hins vegar kláraði það dæmi núna áðan :) Þetta eru ca 1200-1300 metrar og tók mig um 30-40 mínútur. Að vísu er sjórinn í dag um það bil 14° að mér skilst. En andsk..... er ég stoltur af sjálfum mér að hafa klárað þetta dæmi. Næst er það Viðey Cool

Hitt markmiðið mitt, 100 km á línuskautum á innan við 6 klst lítur aðeins verr út. Fór 40 km í gær og verð bara að viðurkenna að þreytan í fótunum eftir það gefur ekki beinlínis fögur fyrirheit um að ég nái þessu, amk ekki á tilsettum tíma. Reyndar er alveg öruggt að ég næ því ekki á tilsettum tíma þar sem ég var búinn að setja mér þetta fyrir lok júlí og á morgun er síðasti dagur júlí og Óðinn, litli prinsinn minn sem er búinn að vera í rúma viku hjá mömmu sinni kemur til mín yfir eina nótt. Því fórna ég ekki fyrir neitt enda farinn að sakna Mini-Me alveg skelfilega mikið InLove

 


Akureyri isssssss

Alltaf halda þeir að það sé bezt þar.

Tók þessa mynd áðan á bak við hús hérna í Reykjavík,......og í algjörum skugga Wink


mbl.is 27,7 gráður á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott kona

Ánægður með Keira núna. Í fyrsta lagi þá þarf hún engu að breyta og í öðru lagi þá er hún að axla þá ábyrgð að vera fræg og að vera fyrirmynd af þeim sökum.

Ég myndi nú bara vilja sjá miklu fleiri frægar konur með svona yfirlýsingar því það er alveg svakalegur misskilningur finnst mér hjá alltof mörgum konum að lítil brjóst séu ekki flott,....MIKILL misskilningur stelpur. Svo er stundum ekki einu sinni um lítil brjóst að ræða, heldur bara löngun í stærri. Og þá veltir maður fyrir sér hvað rekur konur í brjóstastækkun. Er ekki helsta ástæðan sú að þær halda að það sé flottara? Spyr sá sem ekki veit,.........en grunar þó.

Það getur vel verið og meira að segja sennilegt að í einhverjum tilvika þá sé einhvers konar "lagfæring" á brjóstum eitthvað sem hægt væri að verja og ástæða þætti til. En það er mín skoðun og trú að í yfir 90% tilfella þá sé akkurat engin önnur ástæða til staðar en sú að konan haldi bara að þetta geri hana meira kynæsandi, kvenlegri eða þokkafyllri. Ég hef sagt það áður og segi það enn, The real thing er ALLTAF það flottasta,...án undantekninga. En það er bara mín skoðun :)


mbl.is Neitaði að láta stækka brjóstin á myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjósundið :)

Vá hvað þetta er geggjað, að synda í sjónum.

Skellti mér í dag út í og synti töluvert lengra en síðast. Reyndar synti ég mjög lítið síðast þegar ég fór enda voru það bara fyrstu tvö skiptin mín. En núna fór ég kannski 200 metra eða svo. Það var töluverður öldugangur líka í dag sem gerir þetta aðeins erfiðara. En mikið rosalega er þetta gaman og gott. Maður verður ansi ánægður með sig eftir á :) Alveg magnað að finna eftir ca 5 mínútur þegar kuldinn byrjar að hverfa og sjórinn verður allt í einu hlýr að manni finnst. Reyndar er það ekki sjórinn sem er að hlýna heldur er líkaminn að dofna og sömuleiðis að hamast við að halda hita. Ég held að þetta sé allt uppí huganum, maður er bara duglegur að segja sjálfum sér að þetta sé ekkert kalt og þá verður það ekki kalt :)

Annars er bara að ljúka fínni helgi. Fór á föstudaginn á línuskauta, kannski 25 km eða svo. Fór svo í grillveislu hjá systur minni,...þvílík veisla alltaf hjá henni enda snilldarkokkur :) Kvöldið endaði reyndar með því að ég hitti vinnufélaga minn og við skelltum okkur aðeins í bæinn. En svo bara heim að lúlla. Á laugardaginn hjálpaði ég vinkonu minni að flytja og eyddi svo kvöldinu heima í rólegheitum. Í dag var það svo barnaafmæli í fjölskyldunni en ég læt slíkt sjaldan framhjá mér fara enda súkkulaðikökufíkill :) Það vantaði heldur ekki súkkulaðið í þessu afmæli,..nammminamm. Fór svo í sjóinn á eftir.

Morgundagurinn verður svolítið erfiðari og sorglegri en flestir dagar því þá fer ég í jarðarför frænda míns sem fór því miður langt fyrir aldur fram á vit feðra sinna. Lífið hefur sinn gang og maður skilur ekki alltaf allt, svo mikið er víst.


Enn og aftur og eina ferðina enn.........!!!

Hvaða endalausa vitleysa er þetta með síendurteknar viðvaranir á notkun farsíma. Þessar viðvaranir hafa komið upp annað slagið á undanförnum 10-15 árum en aldrei rökstuðningur á bak við þær, ekki einu sinni núna enda tekur forstöðumaðurinn það fram. "Ráðleggur Herberman fólki að bíða ekki eftir að niðurstöður rannsókna staðfesti hugsanleg skaðleg áhrif farsímanotkunar" Hann vill SAMT vara við notkuninni.

Hvers vegna skyldi maður forðast það sem tugir eða hundruð rannsókna hafa EKKI getað leitt í ljós hættu vegna notkunnar? Það eina sem þeir vísindamenn sem vara við farsímanotkun segja er að það hljóti að vera hættulegt, geta bara ekki sýnt fram á það. Eru í alvörunni einhver rök eða eitthvað sem ætti að fá mann til að íhuga þetta einu sinni? Nei, ekkert.


mbl.is Varað við mikilli farsímanotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn smá sími.......og könnun líka :)

Ég þarf nú að hugsa ansi mörg ár aftur í tímann til að mér detti í hug farsími sem getur brotið hönd á manni eða konu. Nema honum hafi verið kastað svona svakalega fast. Ég vona bara símtækisins vegna að um höggþolinn síma hafi verið að ræða, sorglegt ef hann hefur brotnað líka.

Annars er farsímakönnun hérna vinstra megin sem þú lesandi góður mættir endilega taka þátt í Smile


mbl.is Fékk í sig farsíma og handarbrotnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi hefur nú alveg tjáð sig um álverin.......

Setning sem fylgdi í kjölfarið á lagi sem hann samdi og frumflutti (að ég held) á 060606 um álverin hljóðaði á þessa leið "Bókin heitir Draumalandið, lesið hana og þið munuð skilja" 
mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvad for helvede....

Þetta er kolrangt hjá frændum mínum svíum. Enda veit ég ekki hvernig svíar eiga að fara að því að gera svona könnun,......þar eru allir fallegir og því ekki marktækur munur á sölufólki.
mbl.is Fallegt afgreiðslufólk selur ekki meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný áskorun - sjósund

Ég var að koma úr Stykkishólmi þar sem ég eyddi helginni vegna fertugsafmælis bestu vinkonu minnar til síðustu 25 ára, hennar Helenu. Við vorum þarna 4 og með mikinn barnaskara með okkur :) Frábær helgi.

Helena hefur frá barnsaldri stundað það að synda í sjónum en undanfarnar vikur hefur hún verið að hvetja mig út í þetta líka og nú um helgina lét ég vaða og vá, Jesús Pétur hvað þetta var kalt,....brrrrrrrrrrrr. Sjórinn þarna var um 7-8° á celsius. Henti mér út í á föstudagskvöld og kallinn varð svo heillaður að aftur var látið vaða á laugardagskvöld og þá aðeins lengur.

Nú er ég semsagt kolfallinn fyrir þessu og ætla að fara að stunda þetta á næstunni þrátt fyrir þá staðreynd að þetta er náttúrulega bara rugl sko Tounge En ég mæli sko hiklaust með þessu.

En núna er 2 vikna sumarfríi lokið í bili og á morgun fer ég að vinna. Óðinn er búinn að vera með mér í 2 vikur og margt búið að bralla og hann búinn að ferðast heil ósköp á þessum stutta tíma. Hann hefur aldrei ferðast svona mikið. Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Stykkishólmur og þúsundir kílómetra. Svo fer hann semsagt til mömmu sinnar núna og mér skilst að hringferð um landið sé á planinu. Ferðasumarið mikla hjá mínum gaur og það verður skrítið núna að hafa hann ekki alla daga. En núna fer líka í hönd mikill skautatími hjá mér því ég hef bara 10 daga til að negla 100 kílómetrana,....Sick  Vonandi verður veðrið mér hliðhollt.  


Enn og aftur rangar fréttir tengdar iPhone umfjöllun

Mikið yrði ég glaður ef sá fréttamaður sem virðist hafa það sem sitt aðalstarf að fjalla um iPhone myndi kynna sér Betur tölulegar staðreyndir þegar hann skrifar sínar fréttir.

Í þessari frétt segir hann að Blackberry sé með yfirburðarstöðu á smartsímamarkaði viðskiptaheimsins. Það er bara tóm þvæla. Blaðamaðurinn er alveg að gleyma Windows Mobile símum en það sem meira er, hann er að gleyma Symbian sem er LANGSTÆRSTI aðilinn á smartsímamarkaði í heiminum. LANGSTÆRSTI. 

Það sem ég tel reyndar að blaðamaðurinn sé að "klikka" á er að hann er að sækja sínar fréttir til bandarískra fréttamiðla en Blackberry er klárlega stærst í USA. Þegar bandarískir fréttamenn, sumir hverjir, skrifa fréttir, þá gleyma þeir stundum að það er heimur fyrir utan USA.

En svo er annað í fréttinni sem ég hefði viljað fá betri útskýringu á. Hvernig verður rekstur iPhone dýrari með GPS? Það skil ég illa þar sem GPS styðst við beint og samband við gervitungl og kostar ekkert. Hitt er verðið,......hvernig er það komið í 230.000 krónur? 


mbl.is iPhone 3G með aukinn hraða en líka aukinn kostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börnin læra það sem fyrir þeim er haft

Þarf maður að hugsa sérstaklega um það hvað maður gerir eða segir fyrir framan börnin sín? Já, ekki spurning. En hugsar maður alltaf um það, öllum stundum? Nei, því miður held ég að maður geri það ekki eins mikið og maður ætti að gera.

Þetta myndband vekur mann til umhugsunar og er ótrúlega góð áminning um það að börnin læra það sem þau sjá og heyra,...sérstaklega af foreldrunum.


Kominn heim frá Svíþjóð

Jæja, þá er maður kominn heim eftir mjög skemmtilegt en líka stíft ferðalag. Ferðalagið út tók heila 16 klukkutíma og það er alveg slatti þegar maður er með tveggja og hálfs árs orkubolta með sér. Allý var líka með okkur og mikil hjálp í henni. En Óðinn stóð sig vægast sagt eins og hetja alla leiðina. Fyrst var það flug til Köben og það var hans fyrsta skipti í flugvél. Það er óhætt að segja að viðbrögð hans hafi farið fram úr væntingum því aldrei kvartaði hann eða varð hræddur. Vinkona mín sem er flugfreyja og var á vakt gerði nú líka sitt og leyfði honum að skoða alla vélina með sér :)

Við komuna til Köben þurftum við að hafa hraðann á til að ná lest yfir til Malmö þaðan sem við þurftum að ná annari lest á áfangastað. Við vorum alveg á því tæpasta að ná í miðasöluna en þá var þar auðvitað röð. Þegar loks kom að okkur var lestin komin á tíma. Þeir sáu hins vegar að henni seinkaði eitthvað smá svo við keyptum miðana og hlupum sem vitlaus værum að ná henni. Þar biðum við svo í 20 mínútur þar til hún kom. Þetta þýddi því að við misstum að lestinni í Malmö í staðinn og þurftum að kaupa ferð til Gautaborgar fyrst, svo aðra til Uddevalla og þaðan með Rútu til Strömstad. Samtals 16 klst og Óðinn svaf ekki nema tæpan klukkutíma á leiðinni. En það var gott að komast á áfangastað.

Óðinn er mikill Íþróttaálfur og elskar Latabæ sem sést vel á hvernig hann eyðir lausum stundum, í kollhnísa og hlaup með tilheyrandi töktum og sveiflum. En þegar við runnum eftir lestarteinunum innan um skógana í Svíþjóð sagði hann eitt skipti "Pabbi! Vá !!!!,....það er mikið grænmeti hérna" Hans nammi er nefnilega oftar en ekki gúrkur, tómatar og annað grænmeti svo þetta var mikil gleði fyrir hann :)

Ættarmótið var frábært í alla staði. Mjög gaman að hitta alla ættingjana. Mikið af þessu fólki hafði maður hitt áður og suma oft en svo var líka stór hluti sem ég hafði aldrei hitt og hefði líklega aldrei hitt ef ekki hefði verið fyrir þetta ættarmót. Óhætt að segja að þetta hafi ærlega styrkt taugarnar til Svíþjóðar, ættarinnar og upprunans. Läckberg ættin á töluvert í manni og núna eins og oft áður komu upp pælingar hjá okkur hvort við ættum að bæta þessu ættarnafni við nöfnin okkar. Við bjuggum í nokkrum pínulitlum húsum á svona útilegusvæði rétt við staðinn sem ættarmótið var á og það var alveg frábært. Geggjað veður og allt bara súper. Sjórinn hlýr og ég, Allý, Diljá, Maríus og mamma fórum öll í sjóinn að synda. Óðinn auðvitað dýrkaði það að vera öllum stundum útivið að leika sér.

Ég verð að viðurkenna að ég hugsaði eins og svo oft áður þarna, hvað er maður að búa á Íslandi??? En svo kemur maður heim og þá man maður af hverju :)


Ekki þægileg tilhugsun

Dóttir mín og frænka voru í Liseberg í dag og það sem meira var, þær voru símalausar. Sem betur fór var ég staddur ýmist í lest eða flugvél í allan dag og hafði því ekki hugmynd um þetta slys. Er hræddur um að maður hefði verið ansi órólegur. Get eiginlega ekki til þess hugsað......
mbl.is Engir Íslendingar meðal hinna slösuðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband