Færsluflokkur: Bloggar

Frábær forgangsröðun

Ekki að það sé ekki gott og gilt að halda uppi góðu eftirliti með að menn fari hvorki offari í veiðum á þessum annars bragðgóða fugli né séu að skjóta í heimildarleysi. En miðað við fjársvelti lögreglunnar, er þá ekki verið að forgangsraða dálítið illa ef eyða á fjármunum í eftirlit úr lofti með nokkrum veiðimönnum sem upp til hópa eru eingöngu að ná sér í jólamat fyrir sig og sína?

Tjahh, maður spyr sig!!

 


mbl.is Eftirlit með rjúpnaveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sælllllllll...........

Fer tími Ríkisstjórnarinnar semsagt í þetta, að fordæma málningarslettumálið og sitja sérstaka fundi um það? Er það hlutverk ríkisstjórnarinnar? .

Megum við þá núna búast við að lesa um sérstakra fundi hjá ríkisstjórninni og í kjölfarið fordæmingu á eftirfarandi:

Nauðgunum, þjófnaði, beitingu ofbeldis, ölvunarakstri, hraðakstri,...................ég gæti lengi haldið áfram. En ég minnist þess ekki að hafa lesið um Ríkisstjórnarfundi um þessi málefni og að í kjölfarið hafi fylgt yfirlýsing með fordæmingu.

Kemur þessi yfirlýsing frá þeim kannski bara vegna þess að einn ráðherra varð fyrir einhverjum smá látum fyrir utan heimili sitt vegna MJÖG svo umdeilds máls?

Ég man ekki betur en að þessi ríkisstjórn hafi einmitt fagnað því þegar fólkið lét í sér heyra, Búsáhaldabyltingin svokallaða. Er það bannað núna? Er það ekki jafn cool lengur í augum Steingríms og Jóhönnu?


mbl.is Fordæma skemmdarverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggi í sumarbústöðum !

Er þetta ekki bara málið í alla bústaði?

Held að ég myndi amk fá mér svona í minn bústað,....ef ég ætti hann.

 


mbl.is Fundu enga brotamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað !!!!

Alveg er það ótrúlega magnað að eini aðilinn sem sér ástæðu til að hækka er sá sem var hæstur fyrir. Er þetta ekki enn eitt dæmið um þjónustuaðila sem ætlar sér að græða á erlendum ferðamönnum en lætur það lönd og leið að það bitnar auðvitað bara illa á íslendingum? Tjahh, nema Akureyrarbær, eða hver svosem rekur sundlaugina, hafi bara séð sæng sína útbreidda, vitandi að landinn ætlar að ferðast innanlands í sumar og það er ekki eins og það sé eitthvað val um sundlaugar fyrir á Akureyri.
Well, ég fer áfram í Kópavoginn :)
mbl.is Tæplega 69% verðmunur á árskorti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur ekki sammála??!!

Mér þætti gaman að sjá þetta dæmi hjá honum Steingrími. Var þetta skoðað ofaní kjölinn? Hvers vegna ættu hin ekki að geta tekið yfir viðskiptavini og/eða bara allan reksturinn??

Steingrímur er bara ................................... nei annars, ég ætla ekki að segja það.


mbl.is Hefðu ekki getað tekið við viðskiptavinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2007 hahaha :)

Æi ég veit ekki en OFBOÐSLEGA er þetta mikið 2007 dæmi. Fara á rúmlega hálfrar milljón króna námskeið í innanhúss-stílistun Tounge 

Og nafnið á námskeiðinu er líka alveg sprenghlægilegt og klárlega sett upp til að auka "snobb"factorinn í því.

Ég segi bara, Til hamingju Anna með að hafa halað inn tæpar 17,5 milljónir á þessu námskeiði og vonandi að liðið viti amk hvar það á að setja sófann og í hvaða hæð ætti að hengja upp myndina :)


mbl.is Þarf ekki að greiða 19 þátttakendum bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborgin

Nú finnst mér að bloggarar ALLIR ættu að tjá sig og beita þrýstingi. Nú væri líka ráð fyrir mótmælendur að láta í sér heyra.

Mér finnst alveg með ólíkindum að ekki eigi að greiða út atvinnuleysibætur fyrir helgina vegna þess eins að reglur segja eitthvað annað.  Mér finnst það til skammar í því ástandi sem varir. Ég er mjög forvitinn að vita hvernig þessu er háttað almennt hjá ríkisstarfsmönnum, fá þeir greitt á morgun? Öll fyrirtæki sem ég þekki til greiða út síðasta virka dag ef mánaðarmót koma upp um helgi.

Þetta er til skammar !!!


mbl.is Bætur greiddar út eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1031

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband