12.6.2008 | 11:04
Esjuganga og línuskautar
Í gær skellti ég mér á topp Esjunnar. Mikið djöfull er ég með mikla strengi í fótunum, þó ekki jafnmikið og þegar ég fór síðast þarna upp. Þá gekk ég ekki eðlilega í 3 daga á eftir enda var þar um kapphlaup við vin að ræða sem er með jafnmikið eða meira keppnisskap en ég. Munurinn á þessum tveim göngum er basicly sá að í gær var ég 70 mínútur að ná toppnum en í kapphlaupinu var ég 45 mínútur og 20 mínútur niður.
En asskoti var þetta gaman og rosalega var gaman að horfa yfir borgina og reyndar allt höfuðborgarsvæðið frá toppi Mount Esja í góða veðrinu sem var.
Ætlunin var að fara að heiman á línuskautum með skó í bakpoka og labba svo upp. Komst hins vegar að því að það er enginn hjólastígur að Esjurótum svo það var vonlaust. En ég verð líka að viðurkenna að þegar ég var kominn niður þá hugsaði ég með mér "mikið er ég ánægður að þurfa ekki að skauta núna" enda var ég má segja búinn í fótunum. Hef ekki mikla reynslu af Esjugöngum eða yfirhöfuð, fjallgöngum. Að klífa klettana sem fara þarf í gegnum til að ná toppnum gerði ég á viljastyrknum einum. Sagði í sífelldu við sjálfan mig, þú getur þetta, þú skalt upp og hættu þessu væli
Hins vegar eins og veðrið er í dag, þá er alveg ljóst að ég mun taka langan línuskautatúr að vinnu lokinni.
Um bloggið
Steini
Tónlistarspilari
Nýjustu færslur
- 5.6.2014 Benz notar HERE Maps frá Nokia
- 12.4.2013 Öryggi í snjallsímum
- 11.7.2012 Rugl er þetta
- 10.2.2012 Google translate ????
- 5.2.2012 Cryptophone
Tenglar
Línuskautartúrar
- Nokia Sports Tracker - Steini Þetta er algjör snilld, einfalt og kostar ekkert.
Guesthouse
- Bjarg guesthouse Gueasthouse downtown Reykjavik
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Úff! Skil ekkert í fólki að vera að þessu príli :)
Andrea, 12.6.2008 kl. 11:30
Ég var 35 mínútur upp að Steini, ekki upp á topp .
Eva Margrét Einarsdóttir, 12.6.2008 kl. 13:49
Ok, mér líður þá mun betur yfir mínum 70 mínútum á toppinn
Steini Thorst, 12.6.2008 kl. 13:51
Þú ert hetja... En borgin er fögur á að líta frá toppi Esjunnar það er sko satt - Nú er bara að taka annað fjall - og helst um helgina í góðra vina hópi
Linda Lea Bogadóttir, 12.6.2008 kl. 21:34
Í mínum huga ertu hetja að hafa dröslast þarna upp...á dauða mínum á ég frekar von...en að ...já, þarf ég að segja meira?
Heiða Þórðar, 12.6.2008 kl. 23:36
Takk stelpur fyrir þessa hetju nafnbót, hún dregur ekki beinlínis úr manni :) Ég er hins vegar að faaaaarast úr harðsperrum, úffffff
Steini Thorst, 13.6.2008 kl. 09:15
Já var það ekki!! Og hvað hefur maður að gera við mann í pottinum með jarðaberjum sem er að farast úr harðsperrum??!!
Andrea, 13.6.2008 kl. 11:02
hahahaa
Steini Thorst, 13.6.2008 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.