Hvers vegna ætti hann að hætta?????

Ég sé bara ekki hvers vegna formaður Verslunarmannafélagsins ætti að víkja þrátt fyrir þetta. Það er bara ekki hefð fyrir því á Íslandi að menn axli ábyrgð gjörða sinna. Það dettur aldrei nokkrum stjórnmálamanni eða embættismanni að segja af sér, alveg sama hvað klúðrið er stórt. Og peningastrákarnir, hvílík firra að láta sér detta í hug að einhver þeirra fari að gera það.

Guðmundur Árni er sá eini sem á man eftir að hafa sagt af sér í kjölfar klúðurs. En það var nú ekki meiri meining á bak við það en sú að maðurinn er sendiherra Íslands.

Auðvitað styð ég það og krefst að formaður VR segi af sér. En að ég láti mér svo mikið sem detta í hug að hann geri það er eitthvað sem mér finnst vera fjarstæða.


mbl.is Vilja stjórn VR burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

við verðum að breita þessari hugsun

Jón Snæbjörnsson, 7.11.2008 kl. 12:03

2 identicon

Bæði hann og stjórnin á að fara. þetta er hagsmunafélag sem á að vera með stjórn sem hægt er að treysta og nóg eru launin hjá formanni VR Þau þarf að LÆKKA

Guðrún (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 12:10

3 identicon

Þetta er hvorki stjórnmálamaður né embættismaður.  Þetta er maður sem á að gæta hagsmuna minna.  Ég hef engan áhuga á manni sem ekki ber hag fólksins fyrir brjósti.  Við viljum heiðarlegt fólk í gegn í störfin fyrir okkur.

Jóhanna (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 12:11

4 Smámynd: Steini Thorst

Já auðvitað á hann að fara. Vissuð þið t.d. það að hann fékk í laun árið 2007 fyrir stjórnarsetu sína í KB um 600.000 á mánuði,.....og það fyrir 1 fund á mánuði. 600.000 krónur. Og svo neita menn að axla ábyrgð.

Steini Thorst, 7.11.2008 kl. 12:12

5 Smámynd: Steini Thorst

Jóhanna,...ég veit að hann er hvorugt,...en hann er peningastrákur. Segi það aftur, 600.000 á mánuði fyrir einn fund á mánuði.

Steini Thorst, 7.11.2008 kl. 12:13

6 identicon

Ert að gleyma Þórólfi borgarstjóra. Hann tók fulla ábyrgð á því hvernig málum var háttað í olíusamráðinu en hann var líka sá eini sem það gerði.

Var ekki einu sinni með afglöp í starfi sem borgarstjóri.

Vilhelm (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 12:42

7 Smámynd: Landfari

Þórólfur var nú heldur ekki með nein afglöp í starfi hjá Olíufélaginu. Hann var einfaldlega að vinna vinnuna sína. Fannst svolítið langsótt að gera hann ábyrgan fyrir ákörðunum yfirmanna sinna.

Landfari, 7.11.2008 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Steini

Höfundur

Steini Thorst
Steini Thorst
Lifir í heimi farsíma

Tónlistarspilari

Das Kapital - Bubbi - Launaþrællinn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Find my phone

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1001

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband